Persónuverndarstefna - Prófið.is

1. Inngangur

Prófið.is leggur ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga og vinnur með allar upplýsingar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (lög nr. 90/2018) og persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR).

Stefna þessi útskýrir hvaða upplýsingum er safnað, hvernig þær eru notaðar og hver réttindi notenda eru.

2. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er:

  • Prófið.is
  • E-skjöl ehf / 500321-0670
  • Netfang: profid@profid.is

3. Hvaða upplýsingum söfnum við?

Við kunnum að safna eftirfarandi upplýsingum:

Upplýsingar sem notandi veitir sjálfur

  • Nafn
  • Netfang
  • Lykilorð (dulkóðað)
  • Samskipti í formi tölvupósta
  • Upplýsingar um tímasetningu á greiðslum ásamt raðnúmerum frá Verifone og upphæð greiðslna
  • Engar kortaupplýsingar eru geymdar og Prófið.is hefur engan aðgang að þeim, hvorki á meðan greiðsla er í gangi né eftir að hún hefur verið framkvæmd.

Upplýsingar sem myndast við notkun þjónustunnar

  • Innskráningarsaga
  • Notkun náms- og prófaefnis
  • Svör og árangur í æfingum/prófum
  • Tæknilegar upplýsingar (IP-tala, vafri, tæki)

4. Tilgangur vinnslu

Upplýsingar eru notaðar til að:

  • Veita aðgang að þjónustunni
  • Halda utan um notendareikninga
  • Bæta og þróa efni og þjónustu
  • Svara fyrirspurnum
  • Uppfylla lagalegar skyldur

5. Lagagrundvöllur

Vinnsla byggir á:

  • Samningi við notanda (aðgangur að þjónustu)
  • Samþykki (t.d. markaðspóstur ef við á)
  • Lögbundnum skyldum (bókhald o.fl.)
  • Lögmætum hagsmunum reksturs (öryggi og þróun kerfis)

6. Miðlun upplýsinga

Við seljum ekki persónuupplýsingar. Upplýsingar kunna að vera unnar af:

  • Greiðslugáttum
  • Hýsingar- og skýjaþjónustum
  • Tæknilegum þjónustuaðilum

Slíkir aðilar vinna eingöngu gögn samkvæmt vinnslusamningum og í samræmi við lög.

7. Varðveisla gagna

Upplýsingar eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er:

  • Meðan notandi er með aðgang
  • Eða eins og lög krefjast (t.d. bókhaldsgögn)
  • Eins miklar upplýsingar eru ópersónugreinanlegar og unnt er

8. Öryggi gagna

Við notum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir, svo sem:

  • Dulkóðun
  • Örugga hýsingu
  • Aðgangsstýringar

9. Réttindi notenda

Notendur eiga rétt á að:

  • Fá aðgang að sínum gögnum
  • Fá gögn leiðrétt
  • Fá gögnum eytt („rétturinn til að gleymast“)
  • Afturkalla samþykki
  • Leggja fram kvörtun til Persónuverndar

Hægt er að hafa samband á: profid@profid.is

10. Vafrakökur (cookies)

Prófið.is kann að nota vafrakökur til að:

  • Tryggja virkni síðunnar
  • Muna innskráningu
  • Greina notkun til umbóta

Notendur geta stjórnað notkun vafrakaka í stillingum vafra, en vert er að nefna að fyrir eðlilega virkni síðunnar gætu vafrakökur verið nauðsynlegar.

11. Breytingar á stefnunni

Stefna þessi kann að breytast. Uppfærð útgáfa birtist alltaf á vefnum.

12. Samskipti

Fyrir spurningar eða beiðnir um persónuupplýsingar: profid@profid.is