200 dagar í inntökuprófið!
Það sem þú þarft til að læra fyrir inntökuprófið er hér
Veflausnin okkar er smíðuð af okkur og sérhönnuð til að hjálpa þér að ná tökum á efni og formi prófsins. Þú færð aðgang að miklu magni af rafrænum glósum, gagnvirkum spurningum og fleiru.
Ég mæli innilega með glósunum frá Kristrúnu. Þær hjálpuðu mér sérstaklega með eðlisfræði, efnafræði og stærðfræðina til að skilja ákveðin hugtök betur.
Frábærar glósur á íslensku sem henta vel í undirbúningi fyrir inntökuprófið í læknisfræði eða sjúkraþjálfun.
Prófið nýttist mér virkilega vel í undirbúningnum fyrir inntökuprófið í sjúkraþjálfun. Ég fékk aðgang að síðunni daginn fyrir próf og nýttist hún mér virkilega vel. Mér fannst alltaf svo erfitt að læra fyrir þetta próf og þá ekki bara útaf efninu heldur vissi ég í raun ekki hvar ég átti að byrja og...
Plönunum er skipt eftir tíma, hvort viltu vera með okkur í einn mánuð, hálft árið eða allt árið?
Við hönnuðum Prófið.is til þess að vera fullnægjandi til þess að undirbúa sig fyrir inntökuprófið og höfum reynslu til nokkurra ára af því að koma nemendum í gegnum nálaraugað með góðum árangri.
Við kennum hinsvegar ekki "A-hlutann" (það sem HÍ kallar "annað námsefni") af prófinu svo maður þarf sjálfur að undirbúa sig fyrir það.
En allt það sem við teljum að skipti máli er þarna inni, bæði í formi af glósum og æfingaspurningum.
En auðvitað fer þetta lang mest eftir því hversu mikla vinnu og tíma maður leggur í undirbúninginn.
Prófið.is er hannað sem kennsluvefur til þess að undirbúa nemendur sem best fyrir inntökuprófið óháð bakgrunni, allt það sem við teljum skipta máli kemur hér fram. Svo óháð því í hvaða framhaldsskóla þú varst, ef þú ferð yfir námsefnið og undirbýrð þig vel þá ættir þú að vera vel sett/ur.
Nei. Ekki sem stendur, við vildum frekar leggja áherslu á það sem vegur þyngst á prófinu sem er stærðfræði, líffræði, efnafræði og eðlisfræði en bættum einnig við lífrænni efnafræði þar sem við vitum að hún er ekki kennd í öllum framhaldsskólum.
Siðfræðihlutinn er að mestu leyti rökhugsun og getan til þess að sjá kosti og galla við öll umræðuefni, ekki að horfa aðeins á þau frá einni hlið og geta skrifað um það. Við teljum ekki mikla þörf til að undirbúa sig frekar fyrir fagið en svo.
Ef fólk vill lesa enn frekar þá mælum við með bókinni Siðfræði lífs og dauða eftir Vilhjálm Árnason.
Ekki er gefið upp nákvæmlega hvað kemur á prófinu en HÍ upplýsir að námsefnið sé byggt á aðalnámskrá framhaldsskólanna frá 2011.
Skoða aðalnámskrá →Það er alltaf velkomið að senda okkur tölvupóst á profid@profid.is og við svörum eins fljótt og auðið er.

Hæ! Ég heiti Kristrún og ég er læknir! Ég komst inn í læknisfræði við HÍ í fyrstu tilraun og hef síðan þá verið að hjálpa öðrum nemendum að ná árangri á prófinu. Ég er mjög spennt að hjálpa þér að undirbúa þig sem allra best fyrir inntökuprófið!

Ég heiti Rut og er læknanemi á 6. ári í HÍ. Ég komst inn í læknisfræðina á bókunum sem ég las í menntó og glósunum mínum. Ég vona að efnið hér á síðunni sem er einmitt byggt á sama efni muni hjálpa þér að ná árangri á prófinu eins og það gerði fyrir okkur Kristrúnu!

Ég heiti Stefán Orri og sé um hönnun og hugbúnaðarþróun. Ég er með B.Sc. gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá HR. Ég smíðaði Prófið.is til þess að það væri sem einfaldast, aðgengilegast og skilvirkast að vinna með, svo þið getið verið sem best undirbúin fyrir prófið.