Prófið.is veitir aðgang að stafrænu fræðslu- og æfingarefni í formi glósa, æfingaspurninga og annars kennsluefnis sem ætlað er að aðstoða einstaklinga við undirbúning fyrir inntökupróf í læknisfræði, tannlæknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði við Háskóla Íslands.
Með því að kaupa aðgang að þjónustunni samþykkir notandi þessa skilmála.
Þjónustan felur í sér undirbúnings- og kennsluefni sem er ætlað til sjálfsnáms. Efnið:
Efnið og þjónustan er veitt „eins og hún er“ (as is), að því marki sem lög leyfa.
Prófið.is veitir enga ábyrgð eða tryggingu fyrir:
Árangur í inntökuprófum ræðst af fjölmörgum þáttum, þar á meðal eigin vinnu, undirbúningi, getu notanda, prófdegi, fjölda þáttakenda og samkeppni milli umsækjenda.
Prófið.is ber ekki ábyrgð á:
Ekkert í þessum skilmálum takmarkar ábyrgð sem ekki er heimilt að undanskilja samkvæmt íslenskum lögum.
Allt efni þjónustunnar, þar með talið texti, spurningar, útlit og uppsetning, er eign Prófið.is og er varið samkvæmt höfundarréttarlögum.
Notanda er heimilt að:
Óheimilt er með öllu:
Við brot áskilur Prófið.is sér rétt til að loka aðgangi án endurgreiðslu.
Aðgangur að þjónustunni er veittur í samræmi við þá tegund aðgangs sem keyptur er.
Þar sem um er að ræða stafrænt efni sem veitt er strax, gildir almennt engin endurgreiðsla eftir að aðgangur hefur verið virkjaður, í samræmi við undantekningar frá afturköllunarrétti samkvæmt neytendalögum, enda hafi notandi samþykkt að aðgangur hefjist strax og að með því falli afturköllunarréttur niður.
Meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Prófið.is, sem er aðgengileg á vefsíðu þjónustunnar.
Prófið.is áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðu og/eða við næstu innskráningu notanda.